Breyta núverandi skilti
Köllunarklettsvegur 8
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 705
16. nóvember, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta núverandi skilti í ljósadíóðuskilti sem staðsett verður á sama stað og áður á lóð nr. 8 við Köllunarklettsveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018.
Tæknigögn frá framleiðanda fylgir. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt.
Samræmist ekki deiliskipulagi, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018.

Landnúmer: 199097 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090366