nr. 31A - staðsetning ökutækjaleigu
Fiskislóð 31
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 618
27. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn GP-arkitekta ehf., mótt. 27. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðarinnar nr. 31 við Fiskislóð. Í breytingunni felst breytingu á hámarksnýtingarhlutfalli lóðar úr 0,6 í 1,0, samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf., dags. 11. nóvember 2016. Tillagan var auglýst frá 7. desember 2016 til og með 23. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 209683 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092639