framkvæmdaleyfi
Nauthólsvegur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 699
21. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 11. september 2018 um framkvæmdaleyfi vegna breytingar á hæðarlegu og planlegu Nauthólsvegar frá Hringbraut að Flugvallarvegi til aðlögunar að byggingum Hlíðarenda. Einnig er lögð fram yfirlitsmynd ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.21. september 2018. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

Landnúmer: 106748 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073102