framkvæmdaleyfi
Nauthólsvegur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 704
9. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. október 2018 var lögð fram umsókn Skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 19. október 2018 um framkvæmdaleyfi vegna hækkunar Nauthólsvegar frá Hringbraut að Flugvallarvegi og frágang við byggingar á Hlíðarenda. Einnig eru lagðar fram teikningar Mannvits dags. í september 2018 ásamt yfirlitsmynd. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

Landnúmer: 106748 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073102