Breytingar innanhúss
Bergstaðastræti 46
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 534
10. apríl, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að gera svalir á rishæð, innrétta tvö svefnherbergi í risi, baðherbergi í kjallara og breyta innra skipulagi, m. a. innrétta þvottaherbergi og geymslu í bílgeymslu einbýlishúss á lóð nr. 46 við Bergstaðastræti. Erindi var grenndarkynnt frá 26. febrúar til og með 26. mars 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Úlfhildur Dagsdóttir f.h. húsfélagsins Bergstaðastræti 48 dags. 19. og 31. mars 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015. Gjald kr. 9.500
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102159 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007061