breyting á deiliskipulagi
Framnesvegur 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 349
13. maí, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi THG Arkitekta dags. 15. mars 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Framnesreits vegna lóðarinnar nr. 14 við Framnesveg. Í breytingunni felst að setja kvisti á þak rishæðar, einn á hvora hlið, samkvæmt uppdrætti THG Arkitekta dags. 23. febrúar 2011. Grenndarkynning stóð yfir frá 1. apríl til 4. maí 2011. Engar athugasemdir bárust. Bréf barst frá eigendum íbúðar á 2. hæð að Framnesvegi 14 þar sem lýst er yfir samþykki á kynntri breytingu.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100258 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010655