breyting á deiliskipulagi
Álagrandi 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 628
7. apríl, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn ASK Arkitekta ehf., mótt. 31. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Álagranda. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit á lóð fyrir hús sem nýtt verður sem vinnuherbergi/tómstundaherbergi, samkvæmt lagfærðum uppdr. ASK Arkitekta ehf., dags. 13. febrúar 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. mars til og með 30. mars 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

107 Reykjavík
Landnúmer: 197240 → skrá.is
Hnitnúmer: 10074583