(fsp) svalalokun
Skólavörðustígur 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 586
20. maí, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki I fyrir 14 gesti og veitingastað í flokki II fyrir 42 gesti á 1. og 2. hæð og breyta skipulagi íbúða á 2. 3. og 4. hæð og gera svalir á bakhlið íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 21A við Skólavörðustíg. Erindi var grenndarkynnt frá 6. apríl til og með 4. maí. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Jónína Hólmfríður Hafliðadóttir f.h. eigenda og íbúa húseignarinnar að Njálsgötu 2, dags. 18. apríl 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. maí 2016.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. júní 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.