(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 728
17. maí, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Nýs Landspítala ohf. dags. 26. mars 2019 ásamt bréfi SPITAL dags. 26. mars 2019 varðandi tengibrú yfir Hrafnsgötu sem tengir Meðferðarkjarna og Barnaspítala Nýs Landspítala. Óskað er eftir undanþágu frá 6.4.11 gr. byggingarreglugerðar í tveimur atriðum. Annars vegar er óskað eftir að hvíldarpalli sé sleppt og hins vegar að skábraut fái að vera með halla 52,6 eða 1:19. Einnig er lögð fram tillaga Teiknistofunnar Tröð dags. 12. mars 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. maí 2019.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. maí 2019.