(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Samþykkt
‹ 487482
487557
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 20. apríl 2022 varðandi breyting á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Breytt deiliskipulag nær i meginatriðum til Sóleyjartorgs, aðkomu að bílgeymsluhúsi, stækkunar og færslu bílastæða, samkvæmt uppdr. Spital ehf. dags. 16. nóvember 2021, br. 19. apríl 2022. Einnig er lögð fram skýringarmynd Spital ehf. dags. 13. apríl 2022 og ásýnd og grunnmynd með skýringum dags. í apríl 2022. Tillagan var auglýst frá 8. júní 2022 til og með 21. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar