(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 761
7. febrúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Helgu Bragadóttur arkitekts f.h. Nýs Landspítala ohf. dags. 3. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit austan á Meðferðarkjarna að aðaltorgi/Sóleyjartorgi um 50 m2 fyrir glerbyggingu og koma þar fyrir stigahúsi með inngangi frá torginu, samkvæmt uppdr. Spital dags. 31. janúar 2020.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018