(fsp) breyting á deiliskipulagi
Nýr Landspítali við Hringbraut
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 654
20. október, 2017
Annað
Fyrirspurn
Kynnt fyrirspurn Helgu Bragadóttur f.h. Nýs Landspítala ohf., dags. 2. október 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi nýs Landspítala við Hringbraut sem felst í að breyta byggingarreitum meðferðarkjarna 21 og 21A, samkvæmt uppdr. SPITAL ehf., dags. í október 2017. Einnig er lögð fram greinargerð Nýs Landspítala, dags. 29. september 2017.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi til samræmis við fyrispurrnina, á eigin kostnað.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.