breyting á deiliskipulagi
Borgartúnsreitur vestur 1.216
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 770
24. apríl, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits Vestur 1.216 vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi: Guðrúnartún. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags. 28. október 2019, br. 22. apríl 2020. Tillagan var auglýst frá 7. janúar 2020 til og með 18. febrúar 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/umsögn: Helga Ólafsdóttir dags. 9. janúar 2019 og Veitur dags. 18. febrúar 2020. Eftirtaldir sendu póst þar sem ekki eru gerðar athugasemdir: Birkir Fjalar Viðarsson dags. 24. janúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar hjá embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.