breyting á deiliskipulagi
Borgartúnsreitur vestur 1.216
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits Vestur 1.216 vegna afmörkunar nýrrar lóðar fyrir smáhýsi: Guðrúnartún. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Í breytingunni felst að koma fyrir allt að 3 smáhýsum á nýrri lóð, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags. 28. október 2019. Tillagan var auglýst frá 7. janúar 2020 til og með 18. febrúar 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/umsögn: Helga Ólafsdóttir dags. 9. janúar 2019 og Veitur dags. 18. febrúar 2020. Eftirtaldir sendu póst þar sem ekki eru gerðar athugasemdir: Birkir Fjalar Viðarsson dags. 24. janúar 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.