breyting á deiliskipulagi
Hólaberg 84
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 348
6. maí, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Ögmundar Skarphéðinssonar dags. 4. maí 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gerðuberg/Hólaberg vegna lóðarinnar nr. 84 við Hólaberg Í breytingunni felst að byggingarreitur bílageymslu er stækkaður ásamt því að farið er fram á að fella niður kvöð fyrir stæði í bílageymslu, samkvæmt uppdr. Hornsteinar arkitektar ehf., dags. 1. mars 2011 síðast breytt 4. maí 2011.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tekin verður afstaða til málsmeðferðar þegar tillagan berst.

111 Reykjavík
Landnúmer: 218401 → skrá.is
Hnitnúmer: 10098075