deiliskipulag
Vesturvallareitur 1.134.5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 376
16. desember, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu eru lögð fram að nýju drög að deiliskipulagi Vesturvallareits 1.134.5. dags. 1. nóvember 2011. Skipulagssvæðið markast af Vesturvallagötu, Sólvallagötu. Framnesvegi og Holtsgötu. Einnig er lögð fram lýsing dags. 1. apríl 2011, húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur dags. í október 2010 og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 20. apríl 2011. Jafnframt er lagðar fram ábending eigenda að Framnesvegi 31b dags. 19. maí 2011 og Söndru H. Guðmundsdóttur dags. 1. júní 2011. Erindi var í kynningu til og með 9. desember 2011. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Steinunn Þórarinsdóttir og Jón Ársæll Þórðarson dags. 1. desember 2011 og Lögmenn Bankastræti f.h. eigenda þriggja íbúða að Vesturvallagötu 6 dags. 9. desember 2011. Einnig er lagt fram bréf Ragnars Sigurðarsonar dags. 22. nóvember 2011.
Svar

Vísað til skipulagsráðs.