(fsp) smáhýsi á lóð
Efstasund 42
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 612
2. desember, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ágústs Þórðarsonar, mótt. 27. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundin vegna lóðarinnar nr. 42 við Efstasund. Í breytingunni felst að byggingarreitur B er breyttur þannig að innan reitsins rúmist allt að 40 fm. bílskúr sem liggur að lóðarmörkum í norður og vestur, samkvæmt uppdr. Nexus arkitekta, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. október til og með 25. nóvember 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

104 Reykjavík
Landnúmer: 104402 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008553