breyting á deiliskipulagi
Reykjavíkurflugvöllur 106748 - Nauthólsvegur 66
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 856
11. febrúar, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 29. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna lóðarinnar nr. 66 við Nauthólsveg. Í breytingunni felst afmörkun lóðar fyrir Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur, stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni , samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 29. nóvember 2021. Einnig er lagt fram samgöngumat Verkís dags. í júní 2021.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.