Pallur/svalir 1.hæð, svalir 2.hæð o.fl.
Guðrúnargata 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 539
22. maí, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á íbúð 0201 á austurgafli, stækka svalir íbúð 0101, fyrir áður gerðri tvöfaldri hurð á suðurgafli og til að loka hurðagati á vesturhlið bílskúrs mhl. 02, á lóð nr. 8 við Guðrúnargötu.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 3. mars. 2015 fylgir erindi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. mars 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. mars 2015. Einnig fylgir bréf frá hönnuði dags. 15. apríl 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. apríl 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa frá dags. 29. apríl 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Guðrúnargötu 6, 7, 9 og 10 og Bollagötu 5, 7 og 9.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103400 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011044