Pallur/svalir 1.hæð, svalir 2.hæð o.fl.
Guðrúnargata 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 544
26. júní, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á íbúð 0201 á austurgafli, stækka svalir íbúð 0101, fyrir áður gerðri tvöfaldri hurð á suðurgafli og til að loka hurðagati á vesturhlið bílskúrs mhl. 02, á lóð nr. 8 við Guðrúnargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 1. júní til og með 29. júní 2015 þar sem samþykki allra hagsmunaaðila sem grenndarkynnt var fyrir liggur fyrir er erindi nú lagt fram að nýju.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 3. mars. 2015 fylgir erindi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. mars 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. mars 2015. Einnig fylgir bréf frá hönnuði dags. 15. apríl 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. apríl 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa frá dags. 29. apríl 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103400 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011044