breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 464
18. október, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Bólstaðarhlíð, Háteigsskóli. Í breytingunni felst að koma fyrir byggingarreit fyrir tvær færanlegar kennslustofur ásamt tengigangi, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. ágúst 2013. Einnig er lagt fram bréf skólastjóra Háteigsskóla dags. 9. ágúst 2013 og minnisblað skóla- og frístundasviðs dags. 19. ágúst 2013, minnisblað og svör skólastjóra Háteigsskóla dags. 19. ágúst 2013 og minnisblað skólastjóra Háteigsskóla vegna halastjörnunnar dags. 19. ágúst 2013. Einnig lagt fram bréf Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða dags. 21. ágúst 2013 vegna bókunar hverfisráðs Hlíða frá 19. ágúst 2013. Tillagan var auglýst frá 4. september til og með 16. október 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar