breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 544
26. júní, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Reykjavíkurborgar dags. 9. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Bólstaðarhlíð, Háteigsskóli. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit suðvesturhluta lóðar svo koma megi fyrir þriðju færanlegu kennslustofunni, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. apríl 2015. Einnig er lagt fram umboð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 10. apríl 2015. Tillagan var auglýst frá 8. maí til og með 19. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.