breyting á deiliskipulagi
Grandagarður 1-35
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 345
8. apríl, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Faxaflóahafna sf. dags. 14. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 1, 1a, 1b, 3, 5, 7, 9, 11, 13, 13b, 7-11b og 13a-35 við Grandagarð. Í breytingunni felst að lóðirnar nr. 7-11b og nr. 13b eru felldar út, lóð nr. 13a-35 verður lóð nr. 15-37, lóðirnar 9 og 11 verður ein lóð nr. 9-11 ásamt því að breyting verður á kvöðum, samkvæmt uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 12. janúar 2011, breyttur 3. febrúar 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. mars 2011 til og með 4. apríl 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100055 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011416