breyting á deiliskipulagi
Gissurargata 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 657
10. nóvember, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2017 var lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar f.h. Sigurðar Ólafssonar mótt. 5. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 3 við Gissurargötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli úr 0,5 í 0,52, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf., dags. 20. september 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Döllugötu 4, 6 og 8 og Gissurargötu 1, 2 og 5 þegar lagfærðir uppdrættir berast embætti skipulagsfulltrúa.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

113 Reykjavík
Landnúmer: 214850 → skrá.is
Hnitnúmer: 10098121