Hækkun á bílskúr
Langagerði 74
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta hurðum, síkka glugga og hækka bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 74 við Langagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 25. nóvember 2019 til og með 23. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júlí 2019 fylgir erindi. Stækkun: 19,9 rúmm. Erindi fylgir samþykki nágranna á uppdráttum 05-01 og 05-02 dags. 22. mars 2019, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. október 2019, bréf frá hönnuði dags. 25. október 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108565 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014981