framkvæmdaleyfi
Gufuneshöfði
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 743
13. september, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
‹ 463808
463967
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. september 2019 var lögð fram umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 2. september 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Gufuneshöfða. Í breytingunni felst að fjarlægja innsiglingarmerki við Gufuneshöfða og koma fyrir nýju innsiglingarmerki um 105 metra til norðausturs, vestan Leiðhamra/Krosshamra. Við þessa breytingu er deiliskipulagssvæðið stækkað og mörk þess færð til norðvesturs yfir hverfisverndarsvæði Gufuneshöfða að strandsvæði, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta ehf. dags. 2. september 2019. Einnig lagt fram umboð Faxaflóahafna sf. dags. 2. september 2019 og drög að fornleifaskráningu dags. 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.