Sólpallur, gluggi, svalahurð o.fl.
Skógargerði 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 806
29. janúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi fyrir nýjum glugga og svalahurð á austur vegg sem og verönd, einnig er sótt um að færa salerni og eldhús innan 1. hæðar í húsi á lóð nr. 1 við Skógargerði. Erindi var grenndarkynnt frá 23. desember 2020 til og með 25. janúar 2021. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir tölvupóstur frá hönnuði þar sem samþykki eiganda Skógargerðis 3 kemur fram og bréf hönnuðar dags. 26. nóvember 2020, einnig ljósmyndir sem staðfesta breytingu á gluggum mótt. 3. desember 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108644 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017633