breyting á skilmálum deiliskipulags
Sólvallagata 67, Vesturbæjarskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 779
26. júní, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2020 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. júní 2020 að breytingu á skilmálum deiliskipulags lóðarinnar nr. 67 við Sólvallagötu 67, Vesturbæjarskóli. Í breytingunni felst að í stað flutningsheimildar á húsinu, sem stendur í suðvesturhorni lóðarinnar (áður Hringbraut 116-118), er heimilt að rífa það. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 10. júní 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.