breyting á skilmálum deiliskipulags
Sólvallagata 67, Vesturbæjarskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 536
29. apríl, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Reykjavíkurborgar dags. 13. febrúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 67 við Sólvallagötu, Vesturbæjarskóli. Í breytingunni felst að parhús á lóð nr. 10-12 við Vesturvallagötu verður haldið á lóðinni og verður nýtt undir frístundastarf skólans, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. febrúar 2015. Tillagan var auglýst frá 9. mars til og með 20. apríl 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar