breyting á skilmálum deiliskipulags
Sólvallagata 67, Vesturbæjarskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 497
27. júní, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarskóla vegna lóðarinnar nr. 67 við Sólvallagötu. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir fjórar færanlegar kennslustofur, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 10. apríl 2014. Tillagan var auglýst frá 14. maí til og með 25. júní 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.