breyting á deiliskipulagi
Lofnarbrunnur 1-7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 755
13. desember, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 1-7 við Lofnarbrunn. Í breytingunni felst annars vegar skýrari framsetning á heimildum á staðsetningu bílastæða á lóð og hins vegar eru skilmálar og ákvæði um byggingarmagn skýrð nánar, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta dags. 24. október 2019. Tillaga var grenndarkynnt frá 12. nóvember 2019 til og með 10. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

113 Reykjavík
Landnúmer: 206120 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095651