breyting á deiliskipulagi
Gamla höfnin - Vesturbugt, reitir 03 og 04
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Landmótunar sf. , mótt. 22. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Gömlu hafnarinnar - Vesturbugtar. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri göngubryggju austan við lóð Grandagarðs 8 sem tengir núverandi bryggju við gönguleið / bryggju við Rastagötu, samkvæmt uppdr. Landmótunar sf. , dags. 4. október 2016. Tillagan var auglýst frá 31. október 2016 til og með 12. desember 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Stefán Geir Þórisson hjá Forum lögmönnum f.h. Brimgarðs ehf., dags. 12. desember 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 218883 → skrá.is
Hnitnúmer: 10123295