breyting á deiliskipulagi
Bergstaðastræti 49
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 610
17. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Kanon arkitekta ehf. , mótt. 1. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Urðarstígsreits, reitur 1.186.1, vegna lóðarinnar nr. 49 við Bergstaðastræti. Í breytingunni felst að fjarlægja núverandi timburverönd og viðbyggingu við suðurhlið hússins og byggja nýja, lága viðbyggingu á sama stað í hæð sem nemur hæð kjallara. Á þaki nýrrar viðbyggingar verður ný verönd í stað þeirrar núverandi. samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. , dags. 1. nóvember 2016. Umsögn Minjastofnunar dags. 10. október 2016 einnig lögð fram.
Svar

Leiðrétt bókun frá fundi skipulagsfulltrúa dags. 11. nóvember 2016.
Rétt bókun er: Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 48, 48A, 50 og 51. Urðarstíg 2 og 4. Baldursgötu 8.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102220 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007064