breyting á deiliskipulagi
Glæsibær 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 585
13. maí, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lögð fram umsókn Sveins Ívarssonar arkitekts f.h. Jóhannesar Þórs Guðbjartssonar, mótt. 25. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbæjar - Seláss vegna lóðarinnar nr. 5 við Glæsibæ. Í breytingunni felst stækkun húss til austurs og stækkun bílskúrs þannig að hús og bílskúr verða sambyggð, samkvæmt uppdr. Sveins Ívarssonar arkitekts, dags. 10. janúar 2016. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Glæsibæ 3 og 7 og Þykkvabæ 4, 6 og 8.
Áður en grenndarkynning fer fram þarf umsækjandi að greiða skv. 7.6. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1111/2014.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111159 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010415