11A - Fjarlægja burðarvegg - hurð út í garð
Framnesvegur 11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja burðarvegg á milli eldhúss og stofu á fyrstu hæð, síkka glugga á bakhlið og koma fyrir hurð með þrepum út í garð á húsinu á lóð nr. 11A við Framnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. desember 2016.
Fyrirspurn BN051900 fylgir erindinu. Gjald kr. 10.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. desember 2016 samþykkt.
Grenndarkynna þarf erindið.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.1 í Gjaldskrá
vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100317 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010652