(fsp) fella niður/færa stíg
Lautarvegur 2-16
Síðast Synjað á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 630
5. maí, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Jóns Þórs Þorvaldssonar, mótt. 20. febrúar 2017, um að stígur sem liggur norðan við húsin að Lautarvegi 2-6 og sunnan við Skógarveg 12-14 verði felldur niður/færður norður og lækkaður. Einnig er lagt fram bréf Úti og inni sf. , dags. 24. janúar 2017 og bréf Friðjóns Arnar Friðjónssonar og Margrétar Sigurðardóttur íbúðareigenda að Skógarvegi 12, dags. 26. janúar 2017, þar sem lagst er gegn því að stígur verði felldur niður. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2017.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2017.

103 Reykjavík
Landnúmer: 213570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097711