Breytingar - 1. og 4.hæð veitingarstaður í fl. III tegund G
Korngarðar 3
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 626
17. mars, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, mótt. 16. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 3 við Korngarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður að hluta á suðvestur horni reitsins til suðurs og hækkun á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. DAP ehf. , dags. 15. mars 2017. Einnig er lögð fram greinargerð DAP ehf. , dags. 15. febrúar 2017.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Skarfagarði 2 og Korngörðum 1.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

104 Reykjavík
Landnúmer: 223775 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116000