Breytingar - 1. og 4.hæð veitingarstaður í fl. III tegund G
Korngarðar 3
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 735
5. júlí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er nú lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar dags. 23. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka - Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður að hluta á suðvesturhorni reitsins til suðurs, nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,55 og kvöð er á lóðinni þar sem fyrir eru fráveitulagnir og þarf að færa lagnir út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. DAP ehf. dags. 4. apríl 2019. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna dags. 12. apríl 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. júní 2019 til og með 4. júlí 2019. Engar athugasemdir bárust. Einnig lagður fram uppdr. dags. 4. apríl 2019, með auknu nýtingarhlutfalli árituðu, með samþykki hagsmunaaðila. Einnig lagður fram lagfærður uppdráttur dags. 4. apríl 2019, breytt 4. júlí 2019.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

104 Reykjavík
Landnúmer: 223775 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116000