breyting á deiliskipulagi
Njarðargata 25 og Urðarstígur 15
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 434
8. mars, 2013
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. febrúar 2013 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri og klæða að utan með bárujárni einbýlishús á lóð nr. 25 við Njarðargötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. mars 2013.
Stækkun: 34,8 ferm., 242,3 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 21.807
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við unnin verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 7. mars 2013. Tillagan verður grenndarkynnt.