Viðbygging
Langholtsvegur 49
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 656
3. nóvember, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Gunnlaugs Jónassonar f.h. Írisar Georgsdóttur mótt. 30. október 2017 ásamt greinargerð dags. 20. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 49 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir viðbyggingu stækkar og færist til suðurs að lóðarmörkum Langholtsvegar 51 og að þakskegg nái allt að 0,5 metra út fyrir byggingarreit til austurs og vesturs. Flatt þak er leyft á viðbygginguna, samkvæmt uppdr. Teikning.is dags. 23. október 2017.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104437 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015069