Viðbygging
Langholtsvegur 49
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 678
27. apríl, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Gunnlaugs Jónassonar f.h. Írisar Georgsdóttur mótt. 30. október 2017 ásamt greinargerð dags. 20. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 49 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir viðbyggingu stækkar og færist til suðurs að lóðarmörkum Langholtsvegar 51 og að þakskegg nái allt að 0,5 metra út fyrir byggingarreit til austurs og vesturs. Flatt þak er leyft á viðbygginguna, samkvæmt uppdr. Teikning.is dags. 15. desember 2017. Einnig er lagður fram tölvupóstur Gunnlaugs Jónassonar dags. 23. apríl 2018 þar sem umsókn er felld niður/dregin til baka.
Svar

Erindið dregið til baka. með vísan til tölvupósts Gunnlaugs Jónassonar dags. 23. apríl 2018 þar sem umsókn er felld niður/dregin til baka.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104437 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015069