(fsp) gististaður í flokki III
Fiskislóð 27
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 626
17. mars, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 2. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfirisey) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar úr 0,6 í 1,0, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf., dags. 30. nóvember 2016. Einnig er lögð fram útskrift úr fundargerð Faxaflóahafnar sf., frá 29. júní 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. desember 2016. Tillagan var auglýst frá 1. febrúar til og með 16. mars 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar