Breyting á þegar samþykktum uppdráttum
Gerðarbrunnur 52
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 822
28. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, steinsteypta neðri hæð og efri hæð úr krosslímdum timbureiningum, einangrað að utan og klætt læstri álklæðningu á lóð nr. 52 við Gerðarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Gerðarbrunns 50, dags. 13. maí 2021.
Stærð, A-rými: 256,8 ferm., 817,2 rúmm. B-rými: 56,7 ferm. Samtals: 313,5 ferm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. maí 2021, samþykkt.

113 Reykjavík
Landnúmer: 206064 → skrá.is
Hnitnúmer: 10095622