Ný íbúð og breytingar inni og úti
Njörvasund 21
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 863
1. apríl, 2022
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. mars 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að lækka jarðveg á suðurhlið lóðar og gera íbúð í kjallaranum með hurð út á verönd, koma fyrir tröppum frá svölum niður í garð og að koma fyrir járnbita í staðinn fyrir súlu í íbúðar 0201 og breyta sérafnotaflötum á lóð, auk þess sem sótt er um áður gerðar breytingar á innra skipulagi íbúða 0201 og 0301, í húsi á lóð nr. 21 við Njörvasund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105150 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023506