breyting á deiliskipulagi
Köllunarklettsvegur 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Conís ehf. , mótt. 14. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 6 við Köllunarklettsveg. Í breytingunni felst breyting á nýtingahlutfalli lóðar, samkvæmt uppdr. Conís, dags. 25. október 2016. Einnig er lagt fram bréf Conís ehf. , dags. 8. nóvember 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. janúar til og með 30. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

Landnúmer: 199096 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090365