Stækka bílskúr og hækka þak
Flókagata 67
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 577
11. mars, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. janúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við og hækka þakið á bílskúrnum á lóð nr. 67 við Flókagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 5. febrúar til og með 4. mars 2016. Engar athugasemdir bárust.
Tölvupóstur frá hönnuði þar sem grenndarkynningar er óskað dags. 14. janúar 2016 og bréf frá hönnuði dags. 21. maí 2015 fylgja erindi
Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.