framkvæmdaleyfi
Bústaðavegur og Háaleitisbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 748
25. október, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. ágúst 2019 var lögð fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 15. júlí 2019 um framkvæmdaleyfi vegna m.a. gerðs fráreinar í akstursstefnu til austurs og breikkun rampa til suðurs á Kringlumýrarbraut ásamt breytingu á akstursleið inn á rampann frá norðurakbraut Bústaðavegar og setja ný umferðarljós á rampann. Einnig er lagt fram teikningarsett Hnit verkfræðistofu dags. 10. júlí 2019, Hljóðvistarskýrsla dags. 24. október 2019, minnisblað um Hljóðvistarútreikninga við Bústaðavegdags. 25. október 2019 og Hljóðkort eftir breytingar við Bústaðaveg dags. 25. október 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Beykihlíð 7,9,11,13,15,17,19, 21,23,25,27,29,31,33
Birkihlíð 8,10,12,14,16,18,20,22,24,26,28,30,32,34,36,38,40,42,44,46,48

108 Reykjavík
Landnúmer: 108278 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122640