framkvæmdaleyfi
Bústaðavegur og Háaleitisbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 541
5. júní, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. maí 2015 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds mótt. 18. maí 2015 um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda á hjólastíg meðfram Bústaðavegi frá Háaleitisbraut að og Hörgslandi sem felst í að skipta um jarðveg, leggja jöfnunarlag, malbika og þökuleggja meðfram stígnum. Einnig eru lagðar fram vinnuteikningar verkfræðistofunnar Hnit ehf. dags. 5. og 6. maí 2015. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt tölvupósti Reita ehf. dags. 2. júní 2015 þar sem ekki er gerð athugasemd við framkvæmdina. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2015.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdarleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2015.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108278 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122640