breyting á deiliskipulagi
Túngötureitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 345
8. apríl, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 25. maí 2009 að deiliskipulagi Túngötureits. Reiturinn afmarkast af Túngötu, Bræðraborgarstíg Hávallagötu og Hofsvallagötu. Tillagan var kynnt frá 5. júní til og með 22. júní 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Haraldur Ólafsson dags. 20. júní 2009, 9 athugasemdaaðilar dags 20. júní 2009, Edda Einarsdóttir dags. 20. júní 2009, Áshildur Haraldsdóttir dags. 22. júní 2009, Katrín Karlsdóttir dags. 22. júní 2009 og Stefán Snær Grétarsson dags. 22. júní 2009. Einnig lögð fram samantekt skipulagsstjóra dags. 13. nóvember 2009. Á fundi skipulagsstjóra 11. febrúar var erindinu frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulagsráðs.