breyting á skilmálum deiliskipulags
Úlfarsárdalur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 710
4. janúar, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 14. desember 2018 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags í Úlfarsárdal. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni á lóð Úlfarsbrautar 122-124 og 126, samkvæmt tillögu Landmótunar ódags.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.